mánudagur, ágúst 15
http://spaces.msn.com/members/guddan
þetta er nýja síðan mín... kíkkið á mig....
posted @ 2:03 PM ||
mánudagur, júní 20
Halló fólkið gott....
Nú er maður búin að fara í fyrstu útilegu sumarsins sem þið getið bara lesið meira um inná almridur.blogspot.com
En er að vinna í að setja inn myndir frá bústaðaferðinni, London ferðinni og útilegunni.... þetta er allt í NÝJAR MYNDIR hérna að neðan....
posted @ 2:56 PM ||
þriðjudagur, júní 14
Halló elskurnar.... vona að þið séuð ekki búin að gefa upp vonina að lesa bloggið mitt, því ég er kominn aftur og ætla að reyna mitt besta í að vera duglegur bloggari og þá aðallega fyrir hana Lilju mína sem er víst að drepast úr leiðindum heima á Höfn í Hofnafirði, en vonandi kemur hún með okkur í útileguna um helgina... en stefnan er tekin á þann stað þar sem sólin mun láta sjá sig, ef hún lætur þá eitthvað sjá sig, hún er nú yfirleitt frekar treg við það þegar 17 júní er á næsta leiti... en við vonum það besta, því ekki nennir maður að hanga inní tjaldi í brjáluðum kulda....
Það nýjasta í íbúðarmálum hjá okkur hjúum er að inná öngulstöðum er 150 fm skemma sem búið er að teikna sem íbúð og það ekkert smá flotta, það er því okkar æðsti draumur að geta keypt þessa skemmu og innrétta hana svo og gera hana geggjað flotta með tímanum og þolinmæðinni... við erum nefnilega bæði
MJÖG spennt fyrir að búa inní firði, eða allavega einhvers staðar rétt utan við bæinn.... En staðan er þannig að við erum búin að skoða teikningarnar og nú erum við að bíða eftir því að fasteignasali kíki á þetta og reikni út ca verð á þetta fullklárað en fyrsta ágiskun hjá honum var að þetta yrði svipað dýrt og ný 2 herbergja íbúð hérna í bænum og það er sko ekki amalegt fyrir einbýlishús með stórum bílskúr fyrir hann Lúlla minn, sem hann getur gert að kagganum sínum sem hann fær einhvern tíman vonandi...
en þetta er nóg í bili en vil ég benda ykkur síðuna hennar almríðar bletts Häsler sem er
þangað til næsta, sem vonandi verður sem fyrst
Gudda
posted @ 7:57 PM ||
fimmtudagur, maí 26
Sælt veri fólkið hérna sem les síðuna mína.... þó ég haldi að ég geti barasta talað þá á fingrum annarrar handar en þó held ég eitthvað áfram fyrir þessar fáu hræður en ég vil fá comment til baka.... takk fyrir...
En nú er ég komin heim frá London Baby og Lúlli kominn heim frá Köben þó honum hafi nákvæmlega ekki neitt langað til að koma heim, var víst næstum því búin að hringja í fyrirtækið sem hann vann hjá þegar við bjuggum úti en gerði samt ekki.... Og erum við því bæði komin norður og flutt inní eitt lítið herbergi og eftir tvo daga erum við ekki alveg að meika það og vildi ég ekkert meira en að vinna milljón í lottó til að geta keypt íbúð núna strax en lífið leikur víst ekki alltaf við mann.... en við verðum að meika þetta sumar hérna og bara fram að áramótum og þá ættum við að geta keypt íbúð.... vonum það allavega... verðum bara dugleg að spara, ég verð bara að finna bankastjóran í mér einhvers staðar aftur, en hann hefur verið í fríi fulllengi og peningamálin því ekki uppá marga fiska....
En London ferðin var alveg geggjað góð, við létum eins og fífl og áttum í bókstaflegri merkingu þá staði sem við vorum á, allavega í strætóum og lestum en þar misstum við okkur í fíflaganginum ;) og fáið þið að sjá myndir sem fyrst, þegar ég verð búin að setja inn myndir og á einnig eftir að sýna ykkur myndir frá bústaðaferðinni frægu og páskunum... geri þetta við tækifæri...
en hafið það gott elskurnar mínar og verið dugleg að kvitta og þá verð ég dugleg að skrifa...
Lov ya
Gudda
posted @ 7:42 PM ||
laugardagur, maí 14
DAginn lesendur góðir... hvernig hefur fólk það á þessum dýrðar laugardegi, þótt veðrir mætti vera betra

en þá er bara að nota tíman bara í að liggja undir sæng og horfa á imbann..... djöfulli er þetta hrikalega ljúft líf að gera ekki neitt um helgar, heldur liggja bara í leti með tærnar uppí loft.

Er samt búin að vera svakalega dugleg síðan ég kláraði prófin, búin að hanga með gömlu hjónunum og Svein Andra alveg helling og fór svo að vinna á fimtudaginn og í gær vann ég frá 7 - 21:30...

nóg af money til að eyða út í London baby... Vá eftir viku verðum við einhvers staðar í Lodnon að spóka okkur... vá vá vá mig hlakkar svo til.....
En það var alveg brjálað að gera í Bónus í gær og alveg er það ótrúlegt með íslendinga, ef matvöruverslanir loka í einn dag (eins og nú á sunnudaginn) þá þurfa þeir að versla fyrir allan mánuðinn, eða að þeir halda... og spyrja svo með sorgarsvip "er lokað á sunnudaginn?????" alveg hrikalegt að komast ekki í búð í EINN heilan dag....
En fyrsta einkuninn komin í hús og er það einkun fyrir aðgerðarannsóknir (
prófið sem ég fór í fyrir viku) og það var ekki meira né minna en 8,5 á því blaði

og var mín nokkuð stolt af þeirri tölu....
En nú hef ég ekkert að skrifa um, ætla að halda áfram að gera ekki neitt...
Guddan out
posted @ 2:27 PM ||
þriðjudagur, maí 10
Vá það er svo gott að vera búin í prófum að þið skiljið það ekki.... búin að vera uppí Odda daginn út og daginn inn í tvær vikur og loksins er þetta á enda.... en árangurinn ahhhhh við skulum bara ræða hann seinna....

það voru eitthvað öll prófin þannig að ég vissi ekki hvernig mér gekk, gat ekkert sagt til um hvort það yrði 5-6-7 eða 8... en að sjálfsögðu vonast maður eftir sem hæstri einkun

ég veit samt ekki hvers maður ætti að biðja til því englarnir geta víst eitthvað minna gert núna fyrir mann... eða hver sem maður á að biðja til
En að öðrum málum.... LONDON baby er það næsta framundan og styttist óðfluga í að norðangellurnar láti sjá sig og við látum LONDON finna fyrir því með okkar brussugangi, öli og látum

vá stelpur hlakkar ykkur ekki til... ég er allavega að deyja úr spenningi, og sérstaklega þar sem ég er búin í prófum og er bara að gera ekki neitt núna, ligg uppí rúmi að netast og hlusta á Damien minn.... bara bíða eftir að Lúlli komi og mamma og pabbi að norðan....
Nenni ekki að skrifa meira... ætla að halda áfram að gera ekki neitt...
Kveðja
Guðriður
posted @ 2:03 PM ||
sunnudagur, maí 8
Jæja gott fólk, nú eru aðeins tveir sólahringar þangað til þetta verður búið og mikið hlakka ég til

þá getur maður verið meira heima hjá sér en yfir blánóttina og kvöldmat.. en það er held ég alveg búið að bjarga mér hvað Lúlli minn er duglegur að elda ofan í mig meðan ég er að læra, ég kem heim í heitan mat og fer

takk elskan!!!
Enn sit ég uppí odda, kom að vísu ekki fyrr en 12, ákvað að sofa aðeins lengur þrátt fyrir próf á morgun, ég var bara svo þreytt í morgun og heilinn hefði aldrei komist í gang fyrir 11, maður er að verða búin að lesa frá sér allt vit.... og gæfi ég mikið fyrir það að fá nokkra daga á milli prófa, því eftir prófið í gærmorgun neitaði heilinn bara að taka við upplýsingum í smá tíma

en ég náði nú að nýta þann tíma í einn O.C þátt og það var þá enginn smá þáttur... bara allt að gerast í sápunum þessa dagana en ég fer ekki út í þá sálma hér, því þá yrði nú óspart gert grín að manni

En ætla að læra í gagrýninni hugsun og siðfræði núna og læra eitthvað áfram (mjög líklega til 1-2 í nótt ef ég þekki mig rétt) og klára svo þessi próf og heyri í ykkur eftir þau
Gangi mér vel

og eru ekki allir búnir að senda mömmu sinni blóm í tilefni mæðradagsins????

Guðríður OUT
posted @ 12:30 PM ||